|
|
20.07.2006 22:58:38 / maja
Ég er komin með aðra síðu! Vonandi verð ég duglegri þar!
Sjáumst þar!! 
http://www.123.is/maja

»
18.06.2006 19:45:39 / maja
»
13.06.2006 20:16:53 / maja
»
07.06.2006 02:27:38 / maja

Fyrsti dagurinn af þremur. 6.- 8.
júní.
»
20.05.2006 11:38:38 / maja
»
18.05.2006 15:46:45 / maja
Vorið er komið aftur eftir smá frí. Verst
bara að ég sé varla fallegu blómin og
laufblöðin vegna vorofnæmis! Margir gætu haldið að ég væri nú
þegar farin að gráta skólalokin, en það er ekki svo...ekki enn
að minnsta kosti. 
Í dag er seinasti langi MIT
dagurinn minn. Er að fara að hitta einn nemandann minn eftir
smástund og eftir það fer ég í seinasta Negotiation tímann, ég enda
svo kvöldið á tvöföldum tíma með öðrum nemanda mínum.
Kennslan alveg að verða búin líka, en þó verð ég
eitthvað að hjálpa þeim fram eftir sumri í gegnum email og
Skype.
Ég hef verið að velta því fyrir mér hvort að ég
sé komin inn í nýtt tímabil í lífinu. Ástæðan er sú að ég er að
henda heilu kaffibollunum (þeir eru stórir í USA)
í ruslið því ég hef ekki verið að klára þá!! Það var nú alveg
óþekkt bara fyrir einum mánuði eða svo, en núna fæ ég mig ekki einu
sinni til að klára einn bolla á heilu kvöldi. Til að gera söguna
enn merkilegri þá hef ég verið að kaupa mér
appelsínusafa núna nokkrum sinnum í stað
kaffisins!! Það er að sjálfsögðu jákvætt, en að sama skapi
undarlegt. Kannski að mig vanti þetta C vítamín. Heilsan ekki alveg
í góðu lagi þessa dagana. Ofnæmi, magavírus/ælupest, og frunsa
í nösinni (reyniði að toppa það!!). Svona fer
stressið með mann. Ég er þó að de-stressast þessa
dagana. Finn það. Ligg aftarlega í hægindarstólnum mínum í þessum
skrifuðu orðum. Notaleg tilfinning, fyrir utan kláðann í augunum.
Fyrir utan kláða, þá fer sólin vel með mann. Er
farin að hlakka til að hitta vinina á Íslandi, hvenær svo sem það
verður. Kannski það verði 12. júní. Kannski ekki. Kannski ekki fyrr
en í lok sumar. Hver veit. Ekki ég að minnsta kosti! Jæja, komin
tími á MIT. Bið að heilsa í bili.
»
17.05.2006 05:37:58 / maja
Ég hef áttað mig á því að því lengur sem
maður bíður með að skrifa inn færslu, því erfiðara verður
það--því af svo mörgu er að segja!
Er að læra undir Accounting
próf sem ég fer í á morgun. Er bara nokkuð róleg yfir þessu satt
best að segja, en ástæðan er sú að ég er búin að fá hrein A í báðum
prófunum á þessari önn! Ekki nóg með það, heldur hef ég EINUNGIS
fengið A í þeim prófum sem ég hef tekið á þessari önn í mínum
áföngum. Þetta væri nú ekki frásögum færandi nema hvað að ég hef
einungis einu sinni áður fengið A á prófi, en það
var haustið 2002! Takk fyrir það. Ég er sem sagt aldeilis að enda
með stæl. Ekki nema tæplega 22 dagar í útskrift!
Ja hérna mig. Ég er að fullorðnast. Komin á aldur.
"Real world" er að taka við, hvort sem það verður meiri skóli eða
vinna. Fer í mitt seinasta próf laugardaginn 20. maí og eftir það
tekur við stanslaus gleði með vinum og kunningjum fram að útskrift.
Já og svo smá pakkningar (öll mín búslóð )!
Ingibjörg frænka er á leiðinni
heim til Íslands, fór í kvöld. Var farin að hlakka til að
geta eytt meiri tíma með henni í sumar, en hún ákvað að taka ekki
sumarskólann í þetta skiptið. Sé þig nú vonandi í sumar.
Guðbjörg Birna vinkona stoppaði svo hjá
mér í tvær nætur og fór heim í gærkvöldi. Ég get nú ekki sagt að ég
hafi verið mjög skemmtilegur gestgjafi! Var nefnilega að vinna í
graduate school application sem ég sendi loksins inn í gær!!!
Þvílíkur léttir! Náði þó að brosa aðeins fyrir Guðbjörgu eftir að
ég sendi umsóknina inn. Við borðunum vikuskammt
af mati á tveimur dögum (þar af 5 daga skammt á Cheesecake
Factory). Geri aðrir betur. Hef ekki áður borðað á
Cheesecake með manneskju sem metur matinn eins mikið og ég sjálf!
85% af samtalinu okkar yfir matnum var um matinn sjálfan. Það
fannst mér skemmtilegt. P.S. Guðbjörg, þú gleymdir gallabuxunum
þínum hjá mér (en ég hef ekki enn rekist á bronsskóinn)!!
Já eins og ég talaði um í seinustu færslu þá mun
ég ekki taka starfinu sem mér var boðið. Fór
reyndar út að borða með þeim um daginn og tveimur öðrum Harvard
nemendum sem þeir réðu. Mér leist mjög vel á allt fólkið og á
vinnuna sjálfa, en ég finn þó að ég get ekki sagt já án þess að
vita með skólann. Deadline-ið er núna á föstudaginn og ég ætla
frekar að bíða og sjá hvað kemur út úr
skólaumsókninni. Ætla að senda allar mínar jákvæðu
hugsanir til skólans! Fæ þó ekki að vita hvort ég komist inn
fyrr en í júní einhvern tímann (í seinasta lagi 30. júní). Ætla
bara að njóta mín þangað til (já og á eftir!) Af nógu
er að taka í lífinu. Læt kannski verða af
Kaliforníubíltúrsdraumnum í júlí. Sjáum hvað
gerist. Annars langar mig líka til þess að læra betur golf, drekka
ávaxtasmoothie og lesa nokkrar bækur. Langar líka til að
skella mér á einhverja strönd og nota nýju sólgleraugun mín. Mig
langar til að lifa og njóta. En hvað þetta er skrítið allt saman,
þó ekki endilega neikvætt--hvað allt er óráðið. Fyrsta tímabilið í
lífinu sem er svona óljóst. Er spennt fyrir því að búa á mörgum
stöðum í heiminum; austurströnd USA (Boston),
vesturströnd USA (Kalifornía) og jafnvel England. Þetta kemur allt
saman í ljós. Það er nú bara svolítið spennandi að vita ekki
hvað verður. Veit að ég verð að flytja úr herberginu mínu 9. júní
og að fjölskyldan fer aftur til Íslands 12. júní. Það er allt og
sumt.
»
02.05.2006 18:42:33 / maja
»
01.05.2006 03:18:13 / maja
Þá eru ekki nema 39 dagar
til útskriftar. Ja hérna mig. Ég á aldeilis eftir að sakna þessa
staðar. Hér hef ég vaxið og þroskast. Ótrúlegt hvað þessi staður
á mikið í mér núna.
Englandsferðin var frábær!
Gaman að hitta líka bróður minn og fjölskylduna hans. Litla frænka
mín er orðin fjögurra og hálfs árs gömul og er með svakalega
fallegan breskan hreim! Henni fannst Boston
hreimurinn minn frekar ljótur eins og mér sjálfri!
Sagði mér að ég þyrfti ekki að "tala Boston núna". Bara
segja peipahh og votahh í staðinn fyrir papöööööör og votööör...
Litla rúsínan. Við sváfum saman í svefnsófanum allar næturnar
nema eina. Ég fékk að sofa með prinsessusængina
hennar. Mamma hennar sagði mér reyndar að það væri nú bara af því
að hin væri mýkri! Svo sofnuðum við haldandi í hendur. Algjör
rúsípús! Skólinn kom mér skemmtilega á óvart. Svakalega
sögulegar byggingar, sem kom mér nett á óvart þrátt fyrir að það
ætti nú ekki að gera það. Ég tók þó eftir því að ég er orðin alveg
SVAKALEGA bandarísk. Kom til London fyrir tveimur
árum og leið bara ágætlega. En þegar ég fór núna, þá fannst mér
geisla af mér hversu amerísk ég væri orðin. Ekki að það sé endilega
slæmt, því hér líður mér óskaplega vel, en þetta var skrítin
tilfinning. Þurfti smá tíma að mata það. Skrítið að finnast ekki
evrópsk lengur. Mun sækja um skólann eftir tvær vikur, það
er stór prósess þannig að ég held áfram að vera súper-busy þessa
önnina. Ég fæ þó ekki að vita hvort ég komist inn (eingungis 32
nemendum hleypt inn á ári) fyrr en í lok júní!! Ég fer
svo í seinasta prófið mitt 20. maí og þá byrjar mitt Senior
Spring! Ætla að skella mér í vínsmökkun, rússíbanagarð, casino,
beer olympics, moonlight cruise og margt, margt fleira! Svo er bara
útskriftin sjálf 8. júní! Er búin að panta cap and
gown. Þetta verður óskaplega mikil upplifun.
Svo er bara að sjá hvað ég geri í
sumar. Hef ekki græna krónu um hvað ég mun gera.
Sérstaklega erfitt þar sem að ég veit ekki hvað ég mun gera í
haust. Var að pæla hvort ég ætti bara að sæka um á einhverju hóteli
í Maldives eyjum!! Það væri nú ekki verra. Ef þið hafið einhverja
uppástungu, endilega látið mig vita. 
Fór á útitónleika í kvöld með
Ben Folds. www.yardfest.org
En þeir voru haldnir í Harvard Yard. Garðinum var lokað og einungis
undergraduate nemendum var hleypt inn, en það komu þúsundir nemenda
þangað. Ótrúlega skemmtilegt þar sem öllum matsölum var lokað og í
staðinn var boðið upp á grill í garðinum. Það var nú bara svo að
þegar tónleikarnir stóðu sem hæst leit ég í kringum mig og bara
táraðist! Tilfinningarnar helltust alveg yfir mig!
Ég er svo óskaplega þakklát fyrir það sem ég hef fengið að upplifa
þessi fjögur ár mín hér úti. Ólýsanlegur tími. Yndislegur.
Jæja, ég er alveg þurrausin
núna (Helga systir kenndi mér þetta orð) og ætla að halda áfram að
nördast á bókasafninu. Á aldeilis eftir að sakna þessa bókasafns!!
Já tilfiningarnar halda áfram...  
Til hamingju með afmælið pabbi!
»
15.04.2006 22:55:26 / maja
»
09.04.2006 18:49:10 / maja
»
15.03.2006 05:28:20 / maja
Búin að dunda mér aðeins við að skoða
myndir frá vinum og kunningjum á Íslandi--það
fékk mig til að brosa. Það fékk mig líka til að hugsa til
þeirrar staðhæfingar að maður eigi ekki að taka lífið of
alvarlega. Ég er svo sannarlega á þeiri skoðun í vissri
merkingu, en ég er þó líka á þeirri skoðun að mér finnst við
ekki taka lífið nægilega alvarlega!...en þá í þeirri merkingu að
við erum ekki að fá út úr lífinu eins mikið og við getum. Við
erum ekki að "eyða" okkar tíma í það sem bensín
fyrir sálina (sem er misjafnt fyrir hvern og einn). Ég lenti í
því um daginn að verða mjög órótt að innan. Ég vissi ekki alveg
af hverju og var nokkuð pirruð yfir því, en svo áttaði ég mig á
því að það var af því að mér fannst ég vera að taka lífinu sem
of sjálfsögðum hluti þessa dagana. Ég fór í gegnum dagana án
þess að hafa einhverja áskorun. Ég skilaði mínum verkefnum, las
mína texta, en þó án þess að "finna fyrir" þeim. Og ég áttaði
mig loksins á því að ég var pirruð á sjálfri mér fyrir að leyfa
mér að komast upp með að njóta ekki hvers andartaks, í stað þess
að njóta þess að vera þar sem ég er í lífinu. Framhaldiðið mun
koma. Ég var ekki í núinu. Ég var þó heldur ekki í framtíðinni.
Ég bara var.
Ég er smátt og smátt að komast að því hvað ég
vil gera í lífinu og það fær mig til að brosa. Minn
purpose. Það er eins og að lífið sé smátt og smátt
að fletta skýjunum ofan af spurningunni um hvar og hver ég verð í
framtíðinni. Merkilegt hvernig það gengur fyrir sig. Lífið þ.e.a.s.
Það að við getum lært af okkar reynslum og haldið áfram að vaxa, án
neins endamarks. Við ráðum því sjálf, en það er reyndar eitt af því
sem ég stundum hræðist. Það er svo margt sem við getum gert í
lífinu og á svo marga vegu, að stundum týnist maður í smá
stund...en svo finnur maður áttavitann sinn. Ég
fann minn áttavita aftur. Kannski týni ég honum enn einu sinni, en
þá vona ég að ég finni annan betri í staðinn. Ég er þó ekki búin að
ákveða mína stefnu ennþá, en mér líður vel með áttavitann í
bakhöndinni. 
Æ já hvað lífið getur verið
undursamlega erfitt. Án erfiðleika á maður erfitt
með að finna sjálfan sig, en það vissi ég ekki fyrir svo löngu
síðan. En þegar maður kemst í gegn, þá er lífið gott. Mig langar
til að heyra frá ykkur ef þið áttuð góðan dag, því það smitar út
frá sér. Ég vil t.d. benda á Jólastrumpinn minn
hér undir tengli til vinstri. Skrifin hennar fá mig til að brosa.
Pepsi Maxíið hennar lætur mig brosa. Mig langar til að brosa oft og
mikið, og mig langar til að sjá ykkur brosa! 
»
17.02.2006 16:01:15 / maja
Thad er kannski kominn timi til thess ad lata
vita af ser. Eg er sem sagt komin heim fra Puerto Rico hafi
einhverjir verid ad velta thvi fyrir ser! En thessi onn er
ein su allra uppteknasta sem eg hef haft og thvi hef eg litid
verid i bloggsambandi. Eg er ad taka tvo MIT
Sloan Business School afanga, Accounting og Power and
Negotiation, two salfraediafanga i Harvard og svo er eg ad kenna
i MIT i tima sem kallast Studies in the Grammar of a Less
Familiar Language, en thetta eru doktorsnemendur ad studera
islensku. Eg kallast thar language
consultant eda instructor! Thessi kennsla er
ansi timafrek, 12 klukkutimar a viku, en a moti kemur ad eg hef
mjog gaman af ollum afongunum sem eg er i thessa onnina. Thetta
er sem sagt ekki thessi typiska senior spring
onn thar sem madur a ad reyna ad taka sem faesta afanga, heldur
aetla eg ad taka thetta med trompi! 
Eg a enn ansi erfitt med ad trua thvi ad thetta
se ad verda buid hja mer herna uti i skolanum. Bara rett rumir
thrir manudir eftir. Haustid er enn oradid, en eg
er med eitt opid sem gaeti verid mjog gott fyrir mig. Thad sem eg
veit tho er ad eg hef enn mikinn ahuga a ad bua her uti. Thott thad
se alltaf gott ad koma heim i fri tha hef eg ekki enn fundid
eitthvad sem togar mig af krafti heim til
frambudar. Thad kannski kemur. En thangad til aetla eg ad reyna ad
njota thess ad geta buid herna uti, thar sem mer lidur vel. 
Svo er eg markmannsthjalfari hja lidi herna uti
hja 10-11 ara stelpum. Oskaplega hefur thad verid gefandi, mjog
gaman. Er med tvo markmenn sem eru duglegir ad
spyrja spurninga og eru godir nemendur (laera hratt og vel).
Thannig ad eg hef ekki alveg lokad a fotboltann enntha og er ad
leika mer ad sparka i bolta med Harvard stelpunum. Margt opid i
sambandi vid fotboltann thannig ad eg aetla bara
ad taka a thvi thegar thar ad kemur. 
Lifid er sem sagt gott her i Cambridge. Veturinn
hefur verid godur, ekkert alltof kaldur thetta arid og enn betri
timar framundan (sol og hiti)!
Eg vona ad allir hafi thad gott. Eg veit ekki
hversu dugleg eg get verid i blogginu utaf timaleysi, en thad er
aldrei ad vita ad madur hendi inn eins og einni og einni faerslu.
En thid vitid allaveganna af thvi ad andinn er
godur hedan fra Cambridge. Bless i bili kaeru vinir.

»
25.01.2006 23:02:49 / maja
Prófin LOKSINS búin og ég er á leiðinni til
Puerto Rico eftir 10 mínútur. Vildi bara kasta
kveðju hérna inn til þess að láta fólk vita að ég er enn á lífi
- þrátt fyrir próftörnina! Ég verð vonandi
duglegri að skrifa þegar ég kem heim frá Puerto Rico, en þá
byrjar næsta önn.
Ég mun kannski skrifa eitthvað hérna inn á
síðuna mína frá ströndinni í gegnum nýja símann
minn, Blackberry 7105t!! Ó tækniundur...

»
14.01.2006 05:46:30 / maja
Lítið um skemmtilegar fréttir nema það að ég
var að ljúka því að hlaupa ALLSNAKIN (nema sokkar og skór)
hringinn í kringum Harvard Yard!! Ég var nú ekki einsömul, því
þetta er gömul hefð sem felst í því að á
miðnætti fyrir fyrsta lokapróf stillir fólk sér (áhorfendur)
hringinn í kringum Harvard Yard og þeir sem vilja hlaupa
naktir einn (eða fleiri) hring án klæða!! Nú er
bara að vona að mynd af manni birtist ekki á forsíðu
skólablaðsins í fyrramálið (alltof mörg "flösh" sem lentu á
manni)!!!! Og til að toppa allt saman, þá hljóp ég þetta
edrú því ég er að skrifa ritgerð núna!! Ja
hérna mig...hvað gerir maður ekki fyrir hefðina!! Ég kveð í
bili. Það verður lítið um skrif hjá mér þennan mánuðinn.
Sumir furða sig á þessari ákvörðun minni, en hér
er ágætis
grein frá samnemanda mínum í Harvard um þennan viðburð.
"There is a great spirit of camaraderie that
comes from group nudity—it is not sexual, but utterly human. In
those moments, as male and female genitalia are not only displayed,
but frequently brushed up against in the frenzy of the crowd, we
are not disgusted—nay, we are invigorated. We slap five to the
clothed onlookers, proud to be participating in this great communal
activity, where we are the focal point, not as individuals, but as
a blur of heroes." ~Harvard nemandi.
»
Síður: 1 2 3 ... 18
|
|